Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði útflutnings og gjaldeyrisskapandi viðskipta.
Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði útflutnings og gjaldeyrisskapandi viðskipta.
Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
Óskað er eftir umsóknum frá klösum eða/og samstarfsverkefnum sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Gerð er krafa til þess að verkefnin styðji atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
Í boði eru 15 milljónir. Mótframlag verkefnisins þarf að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtæki, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman njóta alla jafna forgangs. Að auki verður horft til þess að verkefnin skili ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
Í umsókninni á að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands http://sudur.is/styrkumsokn
Umsóknafrestur er til og með 11. október 2010
Upplýsingar eru veittar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands http://www.sudur.is/í síma: 4808210, 4874822 og 4812961