Röð tónleika er fyrirhuguð í félagsheimilum Flóahrepps í október.
Byrjað verður á Ómari Ragnarssyni, Ragga Bjarna og félögum sem skemmta með söng og gríni í Þingborg 2. október. Skemmtunin byrjar kl. 21:00 og aðgangseyrir er 2.000 kr. Þeir sem vilja tryggja sér miða í tíma hafi samband við Ingibjörgu í síma 691-7082. Ómar og Raggi árita geisladiska á staðnum.

Því næst verða Ingibjörg Aldís sópran og Stefán Helgi tenór, eða Hjaltested/Íslandi dúettinn, með vandaða söngdagskrá í Þjórsárveri 15. október. Þau munu flytja erlend og innlend sönglög ásamt dúettum við undirleik Ólafs B. Ólafssonar á píanó og harmonikku. Eftir tónleika verður söngstund þar sem Ólafur leikur undir á nikkuna. Aðgangseyrir er 2.000 kr. og þeir sem vilja tryggja sér miða hafi samband við Erling í síma 898-8779.
Að lokum eru fyrirhugaðir tónleikar í Félagslundi 29. eða 30. október sem verða auglýstir síðar.