Þann 13. maí n.k. ætlar starfsfólk leikskólans Krakkaborgar að fara í námsferð til Akureyrar. Lagt verður af stað fimmtudaginn 13. maí og komið til baka sunnudaginn 16. maí. Í ferðinni ætlum við að heimsækja þrjá leikskóla og kynna okkur kennsluhætti þeirra.

Leikskólarnir þrír eru Hólmasól sem er Hjallastefnuskóli, Naustatjörn sem er byggir starf sitt á hugmyndafræði John Dewey og er “skóli á grænni grein” og Iðavellir sem er Reggio Emilia skóli þar sem lögð er áhersla á listgreinar og heimspeki með börnum. Það er markmið okkar með þessari námsferð að kynnast nýjum og áhugaverðum hugmyndum og aðferðum sem við getum svo nýtt okkur við að efla starfið í Krakkaborg enn frekar.
Af þessu tilefni munum við standa fyrir fjáröflun í leikskólanum Krakkaborg miðvikudaginn 14. apríl frá kl. 7:45 – 17:15. Í boði verður að kaupa fjölbreytt og gott bakkelsi með kaffinu á aðeins 500 kr. pr/eining.
Það væri okkur sönn ánægja ef þú/þið sæjuð ykkur fært um að styrkja þessa námsferð okkar.
Bestu kveðjur með von um góð viðbrögð
Starfsfólk Krakkaborgar