Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt breytingu á reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts í Flóahreppi. Fyrr á árinu féll úrskurður í Samgönguráðuneytinu er varðaði svokallaðan flatan afslátt í ótilgreindu sveitarfélagi. Flóahreppur hefur greitt flatan afslátt til elli- og örorkuþega sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu en í ljósi úrskurðar ráðuneytis var samþykkt að breyta reglum samkvæmt eftirfarandi:

Ellilífeyrisþegar og 75% öryrkjar eða meira sem búsettir eru í eigin íbúðarhúsnæði og eiga lögheimili í sveitarfélaginu geta fengið afslátt af fasteignaskatti af því húsnæði sem þeir eiga og búa í og ekki er nýtt af öðrum. Eingöngu er um lækkun af íbúðarhúsnæði að ræða.
Öryrkjar skulu skila inn til skrifstofu sveitarfélagsins skriflegri umsókn fyrir 1. febrúar ár hvert ásamt staðfestu skattframtali næstliðins árs. Umsókn skal enn fremur fylgja vottorð um örorkumat.
Afsláttur til ellilífeyrisþega reiknast samkvæmt upplýsinum frá RSK.
Við ákvörðun lækkunar eða niðurfellingar fasteignaskatta skulu notaðar eftirfarandi viðmiðunarreglur:
Tekjur einstaklinga | Lækkun | Tekjur hjóna | Lækkun | |
Allt að | 1.910.048 | 100% | 2.530.193 | 100% |
Allt að | 2.137.614 | 75% | 2.880.710 | 75% |
Allt að | 2.364.101 | 50% | 3.230.152 | 50% |
Allt að | 2.585.199 | 25% | 3.580.664 | 25% |
Viðmiðunartekjur eru heildartekjur, þ.e. tekjur sem mynda álagningarstofn tekjuskatts-, útsvars og fjármagnstekjuskatts eins og þessar tekjur voru á næsta ári á undan álagningarári. Viðmiðunarfjárhæðir skulu uppfærðar árlega með tilliti til breytinga á launavísitölu frá upphafi til loka þess tekjuárs sem miðað er við hverju sinni.
Reglurnar í heild sinni má nálgast á síðunni undir stjórnsýsla, gjöld og samþykktir.