Fundargerð 75. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 16. desember 2009
Fundartími: 20:30 – 00:10
Fundarmenn:
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Guðbjörg Jónsdóttir
Björgvin Njáll Ingólfsson
Jóhannes Hr. Símonarson
Guðmundur Stefánsson
Valdimar Guðjónsson
Einar Haraldsson
Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson stjórnaði fundi og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Dagskrá:
a) Umsókn um breytingu á aðalskipulagi, Bitra
Tekin fyrir tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hraungerðishrepps í Flóahreppi 2003-2015 í landi Bitru, um 50.000 m2.
Óskað er eftir því að landbúnaðarsvæði breytist í þjónustusvæði fyrir fangelsi og/eða gisti- og veitingarekstur.
Kynningarfundur var haldinn um breytingartillöguna 15. desember 2009 sbr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa breytinguna samkv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga.
b) Umsókn um breytingu á aðalskipulagi, Uppsalir
Tekin fyrir tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hraungerðishrepps í Flóahreppi 2003-2015 í landi Uppsala, Versalir, um 10 ha. Óskað er eftir því að frístundabyggðasvæði breytist í landbúnaðarsvæði.
Kynningarfundur var haldinn um breytingartillöguna 15. desember 2009 sbr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa breytinguna samkv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga.
3. Fjórða og síðasta umræða um fjárhagsáætlun Flóahrepps fyrir árið 2010 tekin fyrir. Fyrir fundi liggur tillaga að fjárhagsáætlun. Leiga eignarsjóðs hækkar um 7,84% frá fyrra ári og tryggingargjöld vegna launa í 8,6%. Ekki er gert ráð fyrir neinum launahækkunum á árinu. Heildarfjárfesting ársins er áætluð 100 mkr, þar af er gert ráð fyrir að Jöfnunarsjóður greiði rúmlega 36 mkr.
Sveitarstjórn samþykkir í samráði við fræðslunefnd og leikskólastjóra að starfsmannafundir sem haldnir eru einu sinni í mánuði í leikskóla verði á vinnutíma starfsmanna og er leikskólastjóra falið að útfæra nánar þessa tillögu. Ákvæðið verði endurskoðað að ári.
Áætlun gerir ráð fyrir eftirfarandi í þús. kr.:
Heildartekjur 364.294
Rekstrargjöld 354.645
Rekstrarniðurstaða fyrir A og B hluta er jákvæð um 13.341
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fjárhagsáætlun.
Tekin til seinni umræðu, drög að breytingum á reglum um lækkun eða niðurfellingu vegna fasteignaskatts í Flóahreppi. Úrskurður hefur fallið um að ólögmætt sé að greiða flatan afslátt til elli- og örorkulífeyrisþega eins og gert hefur verið í Flóahreppi.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög sem reglur.
Viðmiðunarreglur til ákvörðunar lækkunar eða niðurfellingar fasteignaskatts verða eftirfarandi fyrir árið 2010:
Lagðar fyrir til seinni umræðu, reglur um akstursþjónustu fyrir eldri borgara í Flóahreppi ásamt gjaldskrá fyrir notendur þjónustunnar.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi reglur og gjaldskrá.
Kynning á stöðu viðræðna við fulltrúa Árborgar um vatnsmál. Sveitarstjórn samþykkir að heimila sveitarstjóra og oddvita að stilla upp samningi við sveitarfélagið Árborg um sameiginlega vatnsöflun.
Rætt um gámasvæði sveitarfélagsins.
Leiðrétt styrkveiting sem tekin var fyrir á síðasta fundi sveitarstjórnar. Samþykkt að veita 45.000 kr. í stað 25.000 kr.
Björgvin Njáll situr hjá við afgreiðslu og telur eðlilegt að mótaðar verði reglur um styrkveitingar sveitarfélagins.
Sveitarstjórn samþykkir að ekki verði um frekari styrkveitingar að ræða fyrr en mótaðar hafa verið reglur um styrkveitingar.
Lagt fram erindi frá Héraðssambandinu Skarphéðni dags. 23. nóvember 2009 þar sem óskað er eftir fjárframlagi umfram það sem Héraðsnefnd Árnesinga greiðir til sambandsins.
Sveitarstjórn samþykkir að greiða sem nemur 30 kr pr. íbúa í viðbótarframlag til sambandsins.
Lagt fram erindi frá Jafnréttisstofu dags. 2. desember 2009 þar sem óskað er eftir jafnréttisáætlun fyrir sveitarféalgið.
Jafnréttisáætlun liggur ekki fyrir. Stefnt er að því að hún verði unnin á árinu 2010.
Lagt fram erindi frá Samgöngunefnd Alþingis dags. 2. desember 2009 þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög.
Sveitarstjórn mælir ekki með samþykkt frumvarps til laga um sveitarstjórnarlög (fjölda sveitarstjórnarfulltrúa).
a) Sveitarstjórnar
Fundargerð sveitarstjórnar dags. 2. desember 2009 lögð fram.
b) Umhverfisnefndar
Fundargerð Umhverfisnefndar dags. 18. október 2009 lögð fram. Sveitarstjórn samþykkir að óska eftir skriflegum rökstuðningi vegna bókunar um vatnsmál í sveitarfélaginu.
c) Félagsmálanefndar
Fundargerð Félagsmálanefndar í uppsveitum Árnessýslu og Flóa dags. 2. desember 2009 lögð fram.
d) Rekstrarstjórnar félagsheimila
Fundargerðir rekstrarstjórnar félagsheimila Flóahrepps dags. 10. mars, 21. apríl, 5. maí, 14. júlí, 18. ágúst, 8. september, 13. október og 3. nóvember 2009 lagðar fram.
a) 118. fundur Skólaskrifstofu Suðurlands dags. 26. nóvember 2009
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 00:10
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Guðbjörg Jónsdóttir (sign)
Björgvin Njáll Ingólfsson (sign)
Jóhannes Hr. Símonarson (sign)
Guðmundur Stefánsson (sign)
Valdimar Guðjónsson (sign)
Einar Haraldsson (sign)
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri (sign)