Fundargerð 70. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Mánudagur 17. ágúst 2009
Fundartími: 20:30 – 23.00
Fundarmenn: Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Guðbjörg Jónsdóttir
Elín Höskuldsdóttir
Jóhannes Hr. Símonarson
Guðmundur Stefánsson
Valdimar Guðjónsson
Einar Haraldsson
Aðalsteinn Sveinsson stjórnaði fundi og Jóhannes Hr. Símonarson ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Dagskrá:
a) Fundargerð skipulags-og byggingarnefndar
Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar dags. 13. ágúst 2009 lögð fram ásamt afgreiðslufundum byggingarfulltrúa dags. 8. júlí, 22. júli og 12. ágúst. Í afgreiðslufundargerð dags. 8. júlí í máli nr. 20 er getið um Fljótshóla 30C í Flóahreppi en þar mun vera átt við Fljótsbakka í öðru sveitarfélagi og kemur því ekki til afgreiðslu sveitarstjórnar Flóahrepps. Að öðru leyti eru ofangreindar fundargerðir staðfestar.
Samningsdrög við fyrirtækið Smíðanda ehf. lögð fram en þau voru unnin af Ara Guðmundssyni hjá VERKÍS og fulltrúum Flóahrepps. Samningsdrögin yfirfarin og rædd af sveitarstjórn. Samþykkt að fela oddvita og sveitarstjóra að fullgera samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Flóahrepps gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi frumvarp að svo stöddu.
a) Sveitarstjórnar
Fundargerð 68. og 69. funda sveitarstjórnar, dags. 30. júlí og 6. ágúst lagðar fram. Varðandi fundargerð 68. fundar sveitarstjórnar skal leiðrétt að Einar Haraldsson var ekki á þeim fundi en Jón Elías Gunnlaugson mættur í hans stað.
b) Byggingarnefndar Flóaskóla
Fundargerð 1. fundar byggingarnefndar Flóaskóla lögð fram. Varðandi lið 4 í fundargerðinni um nefndargreiðslur er ákvörðun frestað.
a) Fundargerð fræðslunefndar
Fundargerð fræðslunefndar dags. 13. ágúst lögð fram. Varðandi lið 1 í fundargerðinni um erindisbréf fyrir skólastjórnendur Flóaskóla og lið 2 í fundargerðinni um reglur um innritun í grunnskóla Flóahrepps er afgreiðslu frestað. Að öðru leyti er fundargerðin staðfest.
b) Trúnaðarmál
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Guðbjörg Jónsdóttir, varaoddviti (sign)
Guðmundur Stefánsson, (sign)
Valdimar Guðjónsson (sign)
Einar Helgi Haraldsson (sign)
Elín Höskuldsdóttir (sign)
Jóhannes Hr. Símonarson (sign)