Kristín Sigurðardóttir, skólastjóri Flóaskóla tók fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu Flóaskóla miðvikudaginn 12. ágúst s.l.
Kristín Sigurðardóttir, skólastjóri Flóaskóla tók fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu Flóaskóla miðvikudaginn 12. ágúst s.l.
Sveitarstjórn Flóahrepps tók ákvörðun um að fara í framkvæmdir við Flóaskóla 13. júlí s.l. Allar tímaáætlanir hafa staðist varðandi undirbúning framkvæmda enda hafa allir lagst á eitt um að hrinda hlutum í framkvæmd. Reiknað er með að jarðvegsvinnu verði lokið við skólann fyrir 24. ágúst þegar skóli verður settur en það er Helgi Sigurðsson sem sér um þær framkvæmdir.
Samþykkt var að semja við Smíðanda um byggingarframkvæmdir og Teiknistofan M2 sér um útlitsteikningar.