Fundargerð 67. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 13. júlí 2009
Fundartími: 20:30 – 22:00
Fundarmenn: Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Björgvin Njáll Ingólfsson
Jóhannes Hr. Símonarson
Guðmundur Stefánsson
Valdimar Guðjónsson
Einar Haraldsson
Hulda Kristjánsdóttir
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson stjórnaði fundi og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Dagskrá:
Fyrir fundi liggur sérfræðiálit frá KPMG sbr. 65. gr. laga nr. 45/1998. Niðurstaða álits er að sveitarfélagið hafi nægt fjármagn til að ráðast í fyrirhugaðar framkvæmdir án þess að fara í lántöku. Fyrirhuguð breyting á rekstri skólamála muni hafa aukinn kostnað fyrir sveitarfélagið í málaflokki fræðslu- og uppeldismála miðað við núverandi fyrirkomulag. Talið er að miðað við fyrirliggjandi fjárhagsáætlanir yrði sá kostnaður ekki verulega íþyngjandi fyrir sveitarfélagið.
Sveitarstjórn hefur jafnframt kynnt sér innsendar verðhugmyndir sem auglýst var eftir.
Sveitarstjórn samþykkir að fara í framkvæmdir við viðbyggingu Flóaskóla á grundvelli fyrirliggjandi draga að viðbyggingu Flóaskóla frá M2 teiknistofu ehf.
Sveitarstjórn samþykkir einnig að fela sveitarstjóra, oddvita og umsjónarmanni fasteigna að ræða við þá sex aðila sem sendu inn lægstu verðhugmyndirnar um hugsanlega aðkomu að framkvæmd. Þessir aðilar eru Ör-tréverk ehf, Tindaborgir ehf, Kríutangi ehf, Eyktarás ehf, Tré og straumur ehf og Smíðandi ehf.
Sveitarstjórn samþykkir einnig að fela sveitarstjóra, oddvita og umsjónarmanni fasteigna að efna til lokaðs útboðs vegna nauðsynlegra jarðvegsframkvæmda vegna nýbyggingar við Flóaskóla.
a) Sveitarstjórnar
Fundargerð sveitarstjórnar dags. 1. júlí 2009 lögð fram.
a) Erindi frá Veðurstofu Íslands til skipulagsfulltrúa
b) Erindi frá Brunavörnum Árnessýslu dags. 6. júní 2009
c) Fundargerð fulltrúaráðs dags. 11. júní 2009
d) Tölvupóstur frá Birgi Erni Arnarsyni dags. 8. júlí 2009
Á fundi liggur frammi:
Óútgefin framvinduskýrsla vegna aðalskráningar fornleifa í Flóahreppi
Ársskýrsla Byggðasafns Árnesinga
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 22:00
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Björgvin Njáll Ingólfsson (sign)
Jóhannes Hr. Símonarson (sign)
Guðmundur Stefánsson (sign)
Valdimar Guðjónsson (sign)
Einar Haraldsson (sign)
Hulda Kristjánsdóttir (sign)
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri (sign)