Fundargerð 59. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 4. febrúar 2009
Fundartími: 20:30 – 23:30
Fundarmenn:
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Guðbjörg Jónsdóttir
Björgvin Njáll Ingólfsson
Guðmundur Stefánsson
Valdimar Guðjónsson
Einar Helgi Haraldsson
Jóhannes Hr. Símonarson
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson stjórnaði fundi og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Gestir fundarins eru Hannes Lárusson og Ástráður Guðmundsson.
Dagskrá:
Hannes Lárusson og Ástráður Guðmundsson kynna fyrir sveitarstjórn framkvæmdir við Íslenska bæinn að Austur-Meðalholtum í Flóahreppi, menningartengda ferðaþjónustu og fræðasetur um íslenska byggingarlist.
Áformað er að ljúka við frágang húsa á á u.þ.b. fjórum mánuðum og undirbúning sýningar á sex til átta mánuðum. Kynning á starfseminni er fyrirhuguð sumarið 2009 og formleg opnun er fyrirhuguð 2010. Fjárhagsáætlanir hafa staðist að mestu leyti þó ekki hafi verið um háa fjárhagsstyrki að ræða frá hinu opinbera.
Sveitarstjórn styður heilshugar við hugmyndir framkvæmdaaðila Íslenska bæjarins og það mikla starf sem lagt hefur verið í undirbúning þess.
Ljóst er að um er að ræða dýrmæta varðveislu á menningarminjum og byggingarlist sem telja má að sé á hröðu undanhaldi í þekkingu núlifandi Íslendinga. Einnig liggur fyrir að um talsverða atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu verður að ræða og því fagnar sveitarstjórn og mun beita sér af fremsta megni fyrir framgöngu þessa merka framtaks.
Gestir yfirgefa fundinn.
a) Fundargerð skipulags-og byggingarnefndar dags. 28. janúar 2009 og afgreiðsla byggingarfulltrúa dags. 21. janúar 2009
Lögð fram fundargerð skipulags-og byggingarnefndar Uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps dags. 28. janúar 2009 og fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 21. janúar 2009 og þær staðfestar.
Lögð fram reglugerð um skólaráð við grunnskóla nr. 1157/2008 ásamt umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 2. desember 2008. Sveitarstjórn samþykkir að ekki verði greitt fyrir setu í skólaráði við skóla sveitarfélagsins.
Lagt fram erindi frá Samgönguráðuneytinu dags. 7. janúar 2009 þar sem kynntur er úrskurður í ráðuneytinu er varðaði flatan afslátt á fasteignaskatti elli-og örorkulífeyrisþega.
Fram kemur að flatur afsláttur sé ekki í samræmi við 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Sveitarstjórn samþykkir að endurskoða afsláttarreglur sveitarfélagsins fyrir álagningu ársins 2010 samkvæmt ofangreindum úrskurði.
Lögð fram til kynningar skýrsla æskulýðsnefndar hestamannafélagsins Sleipnis í tengslum við fyrrgreinda styrkbeiðni.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu til endurskoðunar fjárhagsáætlunar sem fyrirhuguð er í vor.
Rætt um gámasvæði sveitarfélagsins.
a) Sveitarstjórnar
Fundargerð sveitarstjórnar dags. 21. janúar 2009 lögð fram.
b) Fræðslunefndar
Fundargerð fræðslunefndar dags. 22. janúar 2009 lögð fram.
c) Fundargerð oddvitanefndar
Fundargerð oddvitafundar dags. 15. janúar 2009 lögð fram.
d) Skýrslur skípulags-og byggingarfulltrúa uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
Skýrslur skipulags-og byggingarfulltrúa uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps lagðar fram til kynningar.
e) Fundar um vatnsveitumál
Fundargerð fundar um vatnsveitumál dags. 26. janúar 2008 lögð fram og hún staðfest.
a) 421. fundur SASS dags. 9. janúar 2009
b) 165. , 166. og 167. fundur Sorpstöðvar dags. 9. janúar, 15. janúar og 27. janúar 2009
c) Erindi frá Dóms-og Kirkjumálaráðuneyti dags. 22. janúar 2009
d) Erindi frá Sambandi sunnlenskra kvenna dags. 20. janúar 2009
e) Bréf frá Brunavörnum Árnessýslu dags. 16. janúar 2009
f) Erindi frá Bændasamtökum Íslands dags. 16. janúar og 21. janúar 2009
g) Skýrsla um stöðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands dags. 15. janúar 2009
Sveitarstjórn samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar verði 11. mars n.k. kl. 21:00.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 23:30
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Guðbjörg Jónsdóttir, varaoddviti (sign)
Guðmundur Stefánsson (sign)
Valdimar Guðjónsson (sign)
Einar Helgi Haraldsson (sign)
Björgvin Njáll Ingólfsson (sign)
Jóhannes Hr. Símonarson (sign)
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri (sign)