Á fundi sveitarstjórnar Flóahrepps þann 4.júní voru lagðir fram minnispunktar frá fundi fræðslunefndar Flóahrepps með sveitarstjórn sem haldinn var 26. maí 2008. Á fundinum var lögð fram skýrsla fræðslunefndar um niðurstöður íbúafundar sem haldinn var í Flóaskóla 17. apríl.
Í ljósi niðurstaðna þeirrar skýrslu var það tillaga fræðslunefndar að unglingadeild verði stofnuð við Flóaskóla og að tillit verði tekið til þeirrar stækkunar í útreikningum og undirbúningi vegna frekari þróunar skólans.
Fræðslunefnd fór þess á leit við sveitarstjórn að fyrsti árgangur 8. bekkjar við Flóaskóla verði starfræktur skólaárið 2009-2010.

Sveitarstjórn samþykkti að gera úttekt og að vinna tillögur að staðsetningu og fyrirkomulagi við uppbyggingu skólamála. Einnig var samþykkt að setja á stofn stýrihóp vegna verkefnisins sem í sitja Kristín Sigurðardóttir, skólastjóri, Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri, Guðmundur Sigurðsson, umsjónarmaður fasteigna, Elín Höskuldsdóttir fyrir hönd fræðslunefndar og Jóhannes Símonarson.
Stýrihópur hefur hist í nokkur skipti og undirbúið starfið með áherslu á þær hugmyndir sem fram hafa komið.
Ákveðið var að fá til starfa fagaðila til að horfa hlutlaust á svæðið og þær byggingar sem eru til staðar í nágrenni Flóaskóla, meta það, leggja drög að úttekt með stækkun í huga og koma með tillögu að breytingum eða viðbótum. Horfa þyrfti á notagildi bygginga og að öll hugsanleg uppbygging yrði sem hagstæðust kostnaðarlega.
Ari Guðmundsson hjá Verkfræðistofu VST á Selfossi ásamt Ingunni Gunnarsdóttur unnu þarfagreiningu og stækkunarþörf út frá minnispunktum skólastjóra og skýrslu sem unnin var árið 2004 um stefnumótun og stofnun nýs grunnskóla í sveitarfélaginu.
Stýrihópur hefur einnig átt fund með formönnum ungmennafélaga sveitarfélagsins og fulltrúa kvenfélags Villingaholtshrepps til að skoða með þeim hugmyndir að byggingu íþróttahúss og breytingar á Þjóarsárveri, notkun og aðstöðu í tengslum við skólahald á svæðinu.
Þessi vinna hefur leitt af sér hugmyndir um að byggt verði eitt hús sem rúma mun allt viðbótarkennslurými og íþróttaaðstöðu. Byggt yrði í átt að Þjórsárveri og ekki yrði hróflað við útiíþróttaaðstöu.
Vinnan er þó öll á hugmyndastigi ennþá og engar ákvarðanir hafa verið teknar.