Þær framkvæmdir sem ákveðið var að fara í við leikskóla og grunnskóla við síðustu fjárhagsáætlunargerð eru langt á veg komnar og eru áætluð verklok fyrir skólabyrjun á hvorum stað.
Í Krakkaborg var brotinn niður veggur milli ehdhúss og geymslu til að stækka aðstöðu í eldhúsi, dúkur var lagður á eldhúsgólf og húsið málað að innan. Hitarör voru sett í gólf í fjórum herbergjum og nýtt gólfefni sett á gólfin í þeim herbergjum.

Innréttingar voru keyptar og settar saman, bæði í aðstöðu fyrir leikskólanemendur og í eldhús.
Í Flóaskóla voru nokkur lítil rými sem áður hýstu heimavist, sameinuð í eitt stórt herbergi með því að brjóta niður veggi á milli herbergja. Hreinsað var upp úr gólfi, steypt í það aftur og smíðaður stokkur fyrir lagnir. Herbergið verður mállað og gólfefni lagt á gólfið.
Félagar í ungmennafélögum Flóahrepps hafa heldur betur staðið í stórræðum en þau hafa unnið að miklum endurbótum í Krakkaborg og Flóaskóla fyrir sveitarfélagið með góðum árangri, m.a. brotið niður veggi, lagt gólfefni, sett saman innréttingar og komið þeim fyrir. Fleiri íbúar í sveitarfélaginu hafa unnið að framkvæmdum en Harpa og Birgir í Langholti sáu um að leggja hitalagnir í gólf í leikskóla.
Unglingavinna var starfrækt í fimm vikur og lauk henni 18. júlí s.l. með grillveislu í Þingborg.
Unglingarnir hafa annast slátt á svæðum sveitarfélagsins, þökulagt við Þingborg, fúavarið pall við Þingborg og sparkvöll í Flóaskóla. Þau hafa einnig slegið kirkjugarðinn í Gaulverjabæ, hreinsað stéttar við Gömlu Þingborg og ýmislegt fleira.
Flokksstjóri unglingavinnu sumarsins var Birgitta Þóra Sigurðardóttir sem stóð sig með miklum ágætum. Hún verður við störf hjá sveitarfélaginu fram í miðjan ágúst við slátt og fleiri störf.
Á næstu verður farið í framkvæmdir við gatnagerð í Heiðargerði, iðnaðarsvæði. Það var verktakafyrirtækið Nesey sem var með lægsta tilboðið í verkið en áætluð verklok framkvæmda eru 1. október.