Á fundi sveitarstjórnar 4. júní s.l. voru lagðir fram minnispunktar frá fundi fræðslunefndar Flóahrepps með sveitarstjórn 26. maí 2008 ásamt skýrslu fræðslunefndar um niðurstöður íbúafundar sem haldinn var um skólamál í Flóaskóla 17. apríl 2008.
Í ljósi niðurstaðna þeirrar skýrslu er það tillaga fræðslunefndar að unglingadeild verði stofnuð við Flóaskóla og að tillit verði tekið til þeirrar stækkunar í útreikningum og undirbúningi vegna frekari þróunar skólans.

Þess er farið á leit við sveitarstjórn að fyrsti árgangur 8. bekkjar við Flóaskóla verði starfræktur skólaárið 2009-2010.
Sveitarstjórn þakkaði fræðslunefnd fyrir góðan fund og vel framsetta skýrslu og samþykkti að gerð verði úttekt og unnar tillögur að staðsetningu og fyrirkomulagi við uppbyggingu skólamála.
Einnig var samþykkt að setja á stofn stýrihóp vegna verkefnisins sem í eiga sæti skólastjóri, sveitarstjóri, fulltrúi fræðslunefndar, fulltrúi sveitarstjórnar og umsjónarmaður fasteigna.