Fræðslunefnd Flóahrepps stóð fyrir íbúafundi í Flóaskóla fimmtudaginn 17. apríl.
Fundurinn var boðaður til að kalla eftir hugmyndum og fá álit þeirra sem búa í sveitarfélaginu á því hvernig skólamálum verði best hagað til langs tíma litið.
Flóahreppur er sívaxandi samfélag og það húsnæði sem nú hýsir starfssemi Flóaskóla og Krakkaborgar að verða of lítið.
Í þriggja ára fjárhagsáætlun Flóahrepps er gert ráð fyrir fjármunum til framkvæmda við leik-og grunnskóla og á íbúafundi var m.a. verið að leita eftir hugmyndum íbúa um hvernig þeim fjármunum verði best varið.
Fræðslunefnd Flóahrepps stóð fyrir íbúafundi í Flóaskóla fimmtudaginn 17. apríl.
Fundurinn var boðaður til að kalla eftir hugmyndum og fá álit þeirra sem búa í sveitarfélaginu á því hvernig skólamálum verði best hagað til langs tíma litið.
Flóahreppur er sívaxandi samfélag og það húsnæði sem nú hýsir starfssemi Flóaskóla og Krakkaborgar að verða of lítið.
Í þriggja ára fjárhagsáætlun Flóahrepps er gert ráð fyrir fjármunum til framkvæmda við leik-og grunnskóla og á íbúafundi var m.a. verið að leita eftir hugmyndum íbúa um hvernig þeim fjármunum verði best varið. Leitað var svara og umsagna um eftirfarandi mál:
Hvort byggja ætti upp menntastofnanir Flóahrepps á einum stað og þjóna leikskóla-og grunnskólabörnum á sama stað.
Hvort að Flóahreppur ætti að starfrækja grunnskóla fyrir nemendur 1.-10. bekkjar í stað 1.-7. bekkjar eins og gert er í dag en nemendur í Flóahreppi á unglingastigi sem stunda nám við Vallaskóla eru nú um 30 talsins.
Hvernig til hefði tekist með Flóaskóla en á sínum tíma var mikil vinna sett í undirbúning nýs skóla og kom sérstök undirbúningsnefnd, íbúar og ýmsir ráðgjafar að þeirri vinnu.
Hvernig til hefði tekist með þróun og vöxt leikskólans Krakkaborgar en leikskólinn flutti fyrir tæpum 4 árum í húsnæði gamla Þingborgarskólans. Leikskólinn hefur vaxið jafnt og þétt og þjónar nú um 40 börnum á aldrinum 9 mánaða til 6 ára.
Fundargestum var skipt upp í 8-10 manna vinnuhópa sem hver um sig fjölluðu um ofangreind málefni.
Niðurstöðu vinnunar er að vænta á næstu dögum.
Fundurinn var vel sóttur, eða um 50-60 manns sem mættu. Fundarmenn höfðu greinilega mikinn áhuga og sterkar skoðanir á fræðslumálum og voru umræður í lok fundar mjög fjörugar og jákvæðar.