Eftirfarandi frétt birtist á fréttasíðu ruv í dag, mánudag 21. janúar:
Útför Fischers í kyrrþey
Skákmeistarinn Robert James Fischer var jarðsunginn í Laugardælakirkjugarði í morgun, rétt fyrir utan Selfoss. Séra Jakob Roland, prestur kaþólskra í Reykjavík, jarðsöng. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna og var mjög fámenn. Útförin var gerð utan Reykjavík að ósk Fischers sjálfs, einungis ekkja hans og allra nánustu vinir voru viðstaddir.

Meðal þeirra voru Garðar Sverrisson og kona hans Kristín Þórarinsdóttir, sem er ættuð frá Laugardælum. Þangað hafði Fisher nokrum sinnnum komið með þeim hjónum og þekkti til.
Svo mikil leynd hvíldi yfir útförinni að ekki einu sinni sóknarpresturinn, séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, vissi af henni. Gamlir félagar Fishers, allir aðrir en Garðar Sverrisson virðast ekki hafa vitað af útförinni, en samkvæmt heimildum fréttastofu, bar það mjög brátt að, að Fisher var borinn til grafar í Laugardælum í morgun, en ekkja hans Miyoko Watai kom hingað til landsins seint í gærkvöld.
Gröf Fishers er rétt norður frá kirkjudyrum Laugardælakirkju, og á henni voru þrír blómvendir í dag.