Sveitarstjórn Flóahrepps, sveitarstjóri, starfsmaður á skrifstofu og umsjónarmaður fasteigna fóru í vettvangsferð um Flóahrepp fimmtudaginn 25. október.
Fyrirhugað var að skoða borholur hitaveitna í sveitarfélaginu og kaldavatnslindir en þar sem mjög illa viðraði var ákveðið að breyta ferðatilhögun og halda sig meira innandyra.
Sveitarstjórn Flóahrepps, sveitarstjóri, starfsmaður á skrifstofu og umsjónarmaður fasteigna fóru í vettvangsferð um Flóahrepp fimmtudaginn 25. október.
Fyrirhugað var að skoða borholur hitaveitna í sveitarfélaginu og kaldavatnslindir en þar sem mjög illa viðraði var ákveðið að breyta ferðatilhögun og halda sig meira innandyra. Byrjað var á því að heimsækja Selfossveitur þar sem Þorfinnur Snorrason tók á móti hópnum og sýndi honum stjórnstöðina á Selfossi. Síðan var farið að Þorleifskoti og að Ósabotnum þar sem borholur voru skoðaðar undir leiðsögn Þorfinns.
Borðaður var hádegismatur í Kríumýri og þaðan var farið að Oddgeirshólum þar sem hitaveita Hraungerðishrepps er með sína borholu.
Þaðan var haldið að Ölvisholti þar sem Jón Elías Gunnlaugsson tók á móti hópnum og kynnti þá starfsemi sem þar fer fram, bæði vinnslu úr jurtum sem var mjög forvitnilegt að sjá og jafnframt undirbúning að bjórframleiðslu sem fyrirhugað er að fara í fljótlega.
Að lokum var farið í Forsæti II til hjónanna Ólafs Sigurjónssonar og Berþóru Guðbergsdóttur þar sem hópurinn skoðaði þá muni sem þar eru til sýnis í afar vel uppgerðu húsrými Tré og listar.
Öllum þessum aðilum eru færðar kærar þakkir frá sveitarstjórn fyrir höfðinglegar móttökur með stuttum fyrirvara í nokkrum tilvikum.
Stefnt er að því að fara í fleiri slíkar vettvangsferðir um sveitarfélagið til að kynnast þeirri fjölbreyttu atvinnustarfsemi sem þar fer fram.
Meðfylgjandi mynd tók Ólafur Sigurjónsson af ferðalöngum í listasafninun Tré og list.