Úr Áveitunni og Munanum
Dagskrá þjóðhátíðardags hefst kl. 13.30 í Félagslundi og í Þjórsárveri.
Í Einbúa hefst hátíðardagskrá kl. 14.00
Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps og ungmennafélagið Samhygð standa saman að dagskrá við Félagslund sem hefst kl. 13.30.
Íþróttamót verður fyrir börn 14 ára og yngri, keppt er í langstökki, spretthlaupi og hringhlaupi. Verðlaun eru veitt að móti loknu. Kvenfélagið skipuleggur ýmsa leiki, upplestur undir borðum ofl.
Kaffihlaðborð verður þar sem hvert heimili sem sækir skemmtunina leggur til eitthvað góðgæti en kvenfélagið sér um að hella upp á kaffi og koma bollum, glösum og diskum í salinn.
Í Þjórsárveri munu kvenfélag Villingaholtshrepps og ungmennafélagið Vaka standa fyrir skemmtidagskrá að vanda.
Kl. 13.30 hefst íþróttamót fyrir krakka 13 ára og yngri. Keppt verður í 60 m hlaupi, langstökki, kúluvarpi og 800 m hlaupi. Keppt verður um farandverðlaunagripi, fánastöngina hjá stelpum og skjöldinn hjá strákum. Aðeins innansveitarkrakkar keppa um verðlaunagripi en allir hressir krakkar mega keppa með sem gestir. Allir keppendur fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.
Eftir íþróttamótið sér kvenfélagið um ýmsa leiki og keppt verður í reipitoginu sívinsæla þar sem konur eiga harma að hefna frá fyrri árum. Fjallkonan mun flytja ávarp og svo verður drukkið kaffi og öl í Þjórsárveri og eru gestir minntir á meðlætið.
Ýmislegt annað verður í boði fyrir yngstu börnin, m.a. andlitsmálning og hoppukastali.
Ungmennafélagið Baldur stendur fyrir dagskrá á þjóðhátíðardaginn í Einbúa, á stórglæsilegum nýjum velli og hefst hátíðin kl. 14.00
Flutt verður hátíðarræða og fjallkonan kemur fram. Þreytt verður víðavangshlaup og viðurkenningar veittar fyrir það. Þá verða leikir og margt til gamans gert.
Að lokinni dagskrá verður kaffi og meðlæti.
Allir eru velkomnir.