Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur.
Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur.
1. Hraungerði, Prestalaut
Tillaga að deiliskipulagi í landi Hraungerðis, Prestalaut.
Tillagan gerir ráð fyrir byggingu íbúðarhúss á um 2.351 m2 lands.
Aðkoma verður frá Oddgeirshólavegi.
2. Langholt, Langholtskot
Tillaga að deiliskipulagi íbúðarhúsalóðar í landi Langholts, Langholtskoti.
Tillagan gerir ráð fyrir þremur byggingarreitum fyrir íbúðarhús, bílgeymslu, hesthús og skemmu á 24,9 ha lands.
Aðkoma verður frá þjóðvegi 304.
3. Tún
Tillaga að deiliskipulagi fyrir útihús í landi Túns.
Tillagan gerir ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir útihús, byggingarreit 1 (3,0 ha lands) og byggingarreit 2 ( 1,1 ha lands).
Aðkoma er frá þjóðvegi nr. 1.
4. Vatnsholt
Tillaga að deiliskipulagi fyrir landbúnaðarlóð að Vatnsholti.
Tillagan gerir ráð fyrir tveimur byggingarreitum á 28.981m2 lands fyrir reiðskemmu/hesthús og íbúðarhús.
Aðkoma verður frá Kolsholtsvegi nr. 309.
5. Sviðugarðar, Ásgarður
Tillaga að deiliskipulagi fyrir landbúnaðarlóð úr landi Sviðugarða, Ásgarð.
Tillagan gerir ráð fyrir byggingu íbúðarhúss og skemmu á 6,1 ha lands.
Aðkoma verður frá Vorsabæjarvegi nr. 312.
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögu:
6.. Kríumýri
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir jörðina Kríumýri.
Tillagan gerir ráð fyrir íbúðarhúsalóð á 1.600 m2 lands og ferðaþjónustulóð á 2,3 ha lands.
Á ferðaþjónustulóðinni verða byggð þrjú frístundahús og fimm smáhýsi til útleigu auk þess sem er gert er ráð fyrir tjaldstæði og þjónustuhúsi.
Aðkoma verður frá Gaulverjabæjarvegi nr. 33
Skipulagstillögur liggja frammi á skrifstofu Flóahrepps, Þingborg, 801 Selfossi og skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, 840 Laugarvatni, frá og með föstudeginum 15. mars til og með 12. apríl 2007. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. apríl 2007.
Skila skal skriflegum athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins eða á skrifstofu skipulagsfulltrúa. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri Flóahrepps