Fundur sveitarstjórnar 3. febrúar 2010
Fundargerð 77. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 3. febrúar 2010
Fundartími: 20:30 – 23:15
Fundarmenn:
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Guðbjörg Jónsdóttir
Björgvin Njáll Ingólfsson
Jóhannes Hr. Símonarson
Guðmundur Stefánsson
Valdimar Guðjónsson
Einar Haraldsson
Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson stjórnaði fundi og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Önnur mál: Erindi til Vegagerðar til kynningar, hamingjuóskir með fálkaorðu.
Dagskrá:
- Skipulagsmál
a) Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar
Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar uppsveita Árnessýslu og Flóa dags. 26. janúar 2010 ásamt afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Fundargerðir staðfestar. Aðalsteinn Sveinsson vék af fundi vegna afgreiðslu nr. 23, deiliskipulag í Kolsholti.
b) Erindi frá Umhverfisráðuneyti
Tekið fyrir erindi Umhverfisráðuneytis dags. 29. janúar 2010 um aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018. Í erindi kemur fram að ráðuneytið telji að synja beri staðfestingu á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun. Einnig kemur fram að í ljósi meðalhófssjónarmiða verða aðrir hlutar aðalskipulagsins staðfestir þegar sveitarstjórn hefur sent ráðneytinu nýja skipulagsuppdrætti, útfærða í samræmi við framangreinda ákvörðun um að synja þeim hluta aðalskipulagsins staðfestingar er varðar Urriðafossvirkjun.
Sveitarstjórn Flóahrepps lýsir undrun sinni á synjun umhverfisráðherra á staðfestingu aðalskipulagsins og telur að rétt hafi verið staðið að gerð og samþykkt þess. Í ljósi þeirra röksemda sem ráðherra byggir synjun sína á vakna spurningar um hvort öll sveitarfélög á landinu sitji við sama borð þegar kemur að skipulagsmálum. Lengi hefur tíðkast að sveitarfélög víða um land hafi haft þann háttinn á að láta aðila sem óska eftir breytingum á deiliskipulagi og aðalskipulagi bera hluta af kostnaði sem hlýst af skipulagsvinnunni. Hefur þetta fram til þessa verið talið heimilt og ekki verið gerðar athugasemdir af hálfu ráðherra. Þá gerir sveitarstjórn alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð ráðherra. Bæði tók málið mjög langan tíma hjá ráðherra auk þess sem sveitarstjórn var ekki kynnt bréf og gögn frá aðilum, sem vísað er til í ákvörðun ráðherra en þetta eru bréf og gögn sem bárust ráðuneytinu eftir að lögformlegum athugasemdafresti var lokið.
Sveitarstjóra og oddvita er falið að skoða nánar í samráði við lögmann sveitarfélagsins þær leiðir sem færar eru í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í málinu í kjölfar synjunar ráðherra á staðfestingu aðalskipulagsins.
Guðmundur Stefánsson vill bóka eftirfarandi:
Ég tel að aðalskipulagstillaga Flóahrepps sé ein tillaga, sem í heild sinni sé annað hvort lögmæt eða ólögmæt.
Skilyrt tilboð ráðherra um að staðfesta hluta skipulagstillögunnar, tel ég vera tilraun til íhlutunar í skipulagsvald sveitarfélagsins.
Ef skipulagstillagan er hlutuð í sundur er í raun um efnislega breytta aðalskipulagstillögu að ræða sem ég tel að þurfi skipulagslega málsmeðferð í sveitarfélaginu.
Að teknu tilliti til stöðu orkumála í veröldinni, þar sem hratt gengur á olíulindir heimsins og framgangur, kostnaður og umhverfisáhrif annara möguleika í orkuvinnlu er óviss, þá tel ég brýnt að ekki verði önnur uppbygging, sem krafist yrði bóta fyrir, á svæðinu við Urriðafoss, heldur verði hann tekinn frá til orkuvinnslu handa komandi kynslóðum í þeim orkusnauða heimi, sem bíður handan við hornið.
c) Erindi frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Tekið fyrir erindi frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis dags. 8. janúar 2010 þar sem kynnt eru áform um að stofnaðar verði tvær 5 ha. lóðir úr landi ríkis- og eyðijarðarinnar Þjótanda í Flóahreppi.
Óskað er eftir ábendingum frá sveitarfélaginu sem skipulagsyfirvaldi.
Sveitarstjórn telur sig ekki geta tekið afstöðu til erindisins þar sem ekki er gildandi aðalskipulag í þessum hluta sveitarfélagsins.
- Þriggja ára fjárhagsáætlun 2011-2013
Þriggja ára fjárhagsáætlun Flóahrepps 2011-2013 tekin fyrir til seinni umræðu.
Áætlun gerir ráð fyrir óbreyttum skatttekjum á tímabilinu og óbreyttum öðrum tekjum miðað við fjárhagsáætlun 2010.
Gert er ráð fyrir að kennsla eldri deilda flytjist úr Vallaskóla í Flóaskóla á tímabilinu og er gert ráð fyrir auknum launakostnaði og rekstrarkostnaði vegna þeirra breytinga.
Rekstur annarra málaflokka og sjóða er óbreyttur miðað við fjárhagsáætlun 2010.
Áætlun er á föstu verðlagi en gert ráð fyrir 3% verðlagsbreytingu á verðtryggð lán og langtímakröfur. Einnig er gert ráð fyrir 7% vöxtum á handbært fé á tímabilinu.
Íbúafjöldi er óbreyttur á tímabilinu og ekki er gert ráð fyrir lántökum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða þriggja ára fjárhagsáætlun 2011-2013.
- Framkvæmdir við Flóaskóla
Lagt fram erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti dags. 26. janúar 2010. Í erindinu er samþykkt kostnaðarþátttaka Jöfnunarsjóðs í I. áfanga framkvæmdar við Flóaskóla sem nemur 46,4% af áætluðum heildarkostnaði verksins.
Einnig var rætt um framhald framkvæmdanna og samþykkt af sveitarstjórn að auglýst verði eftir verðhugmyndum í II. áfanga.
- Samþykktir um stjórn og fundarsköp Flóahrepps
Rætt um breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp í Flóahreppi.
Samþykkt að vísa málinu til annarrar umræðu.
- Vatnsmál
Lögð fram til kynningar, drög að samningi um vatnsmál.
- Gámasvæði
Sveitarstjórn samþykkir að ræða við Íslenska Gámafélagið um mögulegt samstarf um rekstur gámasvæðis fyrir Flóahrepp.
- Landbótaáætlun
Lagt fram samkomulag um landbótaáætlun fyrir Flóa- og Skeiðamannaafrétt 2010-2014. Sveitarstjórn staðfestir fyrirliggjandi áætlun og heimilar oddvita að skrifa undir fyrir hönd sveitarfélagsins.
- Styrkbeiðnir
Tekin fyrir beiðni um styrk vegna ferðar á norðurlandamót í hópfimleikum Juniora í Finnlandi í apríl.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa beiðninni til samstarfssamnings Flóahrepps og ungmennafélaga sveitarfélagsins sem er í vinnslu.
Sveitarstjórn samþykkir að bjóða HSK að halda héraðsþing sitt í Þingborg og bjóða fulltrúum til hádegisverðar í tilefni af 100 ára afmæli sambandsins sem var stofnað í Hjálmholti.
- Fundargerðir
a) Sveitarstjórnar
Fundargerð sveitarstjórnar dags. 13. janúar 2010 lögð fram.
b) Fræðslunefndar
Fundargerð fræðslunefndar dags. 21. janúar 2010 lögð fram. Sveitarstjórn samþykkir vistun barns starfsmanns í leikskólanum Krakkaborg sem ekki á lögheimili í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn samþykkir einnig eitt stöðugildi stuðningsfulltrúa í Flóaskóla frá 1. febrúar 2010 til 31. maí 2010.
c) Umhverfisnefndar
Fundargerð umhverfisnefndar dags. 28. janúar 2010 lögð fram.
d) Félagsmálanefndar
Fundargerð félagsmálanefndar dags. 13. janúar 2010 lögð fram.
e) Vinnuhóps um framkvæmdir við Flóaskóla
Fundargerð vinnuhóps um framkvæmdir við Flóaskóla dags. 1. febrúar 2010 lögð fram.
f) Rekstrarstjórnar
Fundargerðir rekstrarstjórnar dags. 8. desember 2009 og 12. janúar 2010 ásamt gjaldskrá félagsheimilanna í Flóahreppi.
- Til kynningar:
a) 290. fundur Atvinnuþróunarfélags Suðurlands dags. 13.janúar 2010
b) Fundargerðir 28. aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands dags. 15. október og 20. nóvember 2009
c) 80. fundur fulltrúaráðs Brunavarna Árnessýslu dags. 22. desember 2009
d) Fundur um eflingu sveitarstjórnarstigsins
e) Erindi frá Umhverfisstofnun dags. 5. janúar 2010
f) Fundargerð 28. aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands dags. 15. október 2009 og framhaldsaðalfundar dags. 20. nóvember 2009 ásamt breytingartillögu fyrir framhaldsaðalfund, framtíðarskipan í úrgangsmálum á Suðurlandi og viðauka við samkomulag vegna móttöku á úrgangi frá Sorpstöð Suðurlands.
- Önnur mál:
a) Erindi til Vegagerðar
Lagt fram til kynningar, bréf til Vegagerðarinnar frá sveitarstjóra og formanni stjórnar Flóaáveitu þar sem óskað er eftir framlagi til uppbyggingar á vegi að flóðgátt Flóaáveitunnar.
b) Fálkaorðuhafi
Listakonan Sigga á Grund, Sigríður Jóna Kristjánsdóttir, var sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu 1. janúar s.l. fyrir framlag til þjóðlegrar listar. Sigga er verðugur handhafi fálkaorðunnar en hún hefur sinnt einstakri listsköpun sinni frá unga aldri. Verk hennar eru mikils metin og hún hefur haldið sýningar á gripum sínum sem verið hafa verið mjög eftirsóttir.
Sveitarstjórn Flóahrepps óskar Siggu til hamingju með viðurkenninguna.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 23:15
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Guðbjörg Jónsdóttir (sign)
Björgvin Njáll Ingólfsson (sign)
Jóhannes Hr. Símonarson (sign)
Guðmundur Stefánsson (sign)
Valdimar Guðjónsson (sign)
Einar Haraldsson (sign)
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri (sign)