Varmadælur í félagsheimili Flóahrepps

Tvær varmadælur hafa verið settar upp í Þjórsárveri og tvær varmadælur verða settar upp í Félagslundi á næstunni. Í Þjórsárveri eru svokallaðar loft/loft dælur sem nýtast vel í stórum opnum rýmum.  Í Félagslundi verður sett upp ein loft/loft dæla og ein loft/vatn dæla sem fer inn á ofnakerfi sem er til staðar í Félagslundi.Áætlað er að dælurnar lækki kyndikostnað um allt að 50%. Kyndikostnaður í félagsheimilunum er um 1 mkr. í hvoru húsi þannig að áætlaður sparnaður fyrir Flóahrepp í kyndikostnaði húsanna er um 1. mkr. á ári.  Orkustofnun greiðir niður stofnkostnað vegna varmadælnanna sem nemur allt að 8 ára niðurgreiðslum á kyndikostnaði.