Ný heimasíða

Flóahreppur hefur tekið í notkun nýja heimasíðu. Síðunni er ætlað að flytja fréttir, tilkynningar og upplýsingar um hvað eina sem snertir stjórnsýslu og mannlíf í Flóahreppi. Síðan á að vera einföld í uppsetningu og notkun. Hún skiptist í fjóra flokka sem eru efst á síðunni, stjórnsýsla, skólar, þjónstua og menning og mannlíf. Undirflokkar eru í hverjum flokki og er ætlunin að fjölga þeim, sérstaklega hvað varðar menningu og mannlíf. Það er fyrirtækið Endor-Vefþjónusta á Selfossi sem annaðist gerð síðunnar og mun hafa umsjón með henni.