Myndagjöf

Gyða Guðmundsdóttir, starfsmaður skrifstofu Flóahrepps og áhugaljósmyndari, hefur fært sveitarfélaginu að gjöf mynd eftir sig sem hún kallar Flóagullið og er tekin við Þingborg.
Þessi mynd er búin að fara víða og vera á sýningum á Selfossi, í Reykjavík og Hveragerði.Gyðu eru færðar kærar þakkir fyrir góða gjöf. Á mynd hér til vinstri má sjá Aðalstein Sveinsson oddvita, Gyðu Guðmundsdóttur ljósmyndara og Margréti Sigurðardóttur sveitarstjóra við afhendingu myndarinnar.