Hvatastyrkir og styrkir til æfinga- og keppnisferða

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum 1. febrúar s.l. að veita börnum og ungmennum í Flóahreppi styrki til íþrótta- lista og tómstundaiðkunar. Einnig var samþykkt að veita styrki til æfinga og keppnisferða. Reglunum er ætlað að auðvelda börnum og ungmennum úr Flóahreppi að sinna íþrótta- lista- og tómstundastarfi og sýna þeim ungmennum stuðning sem fara í æfinga- og keppnisferðir innanlands sem utan.

Reglurnar og umsóknir um styrki má nálgast hér á síðunni, http://floahreppur.gagnavist.is/stjornsysla/samthykktir-og-reglur/