Snjómokstur

Verklagsreglur vegna sjómoksturs í Flóahreppi eru eftirfarandi:

Megin markmið snjómoksturs er að koma börnum í skólann á réttum tíma og greiða um leið aksturleiðir þeirra sem þurfa til vinnu. Einnig að tryggja það að mjólkurbílar komist að þeim bæjum þar sem stunduð er mjólkurframleiðsla. Nærumhverfi, s.s. hlöð og styttri afleggjara þurfa íbúar að sjá um sjálfir.

Ekki er mokað þegar veður er þannig að það fenni jafnóðum í för.