Sveitarstjórn hefur samþykkt að útsvar verði óbreytt frá fyrra árið eða 14,48%. Fasteignaskattur er einnig óbreyttur svo og lóðarleiga, vatnsgjald, sorpeyðingargjald og seyrulosunargjald.
Sorphirðugjald fyrir 240 ltr. tunnu verður óbreytt en gjald fyrir 660 ltr. kar og 1100 ltr kar mun hækka. Það er gert með hliðsjón af því gjaldi sem innheimt er fyrir 240 ltr. tunnu miðað við magn en í dag er greitt hlutfallslega mest fyrir minnstu tunnuna.
Eftir lokun á urðunarstaðnum í Kirkjuferjuhjáleigu er sorp urðað í Álfsnesi. Það hefur umtalsverðan kostnaðarauka í för með sér fyrir sveitarfélagið vegna hærri urðunargjalda og lengri aksturs. Kostnaður Flóahrepps vegna rúlluplasts, brúnu og grænu tunnu hækkar ekki og hagur sveitarfélagsins er því í aukinni flokkun og minnkun á urðunarkostnaði.
Það verður ekki gert nema með aðstoð íbúa sem annast flokkun með miklum ágætum og eru nú orðnir sérfræðingar í flokkun sorps enda fyrsta dreifbýlissveitarfélagið sem tók upp þriggja tunnu flokkun.
Þeir sem hafa áhuga á að fá minni tunnu undir sorp til urðunar, geta haft samband við skrifstofuna og óskað eftir því. Einnig er hægt að óska eftir stærra kari fyrir endurvinnanlegt sorp en hvorutveggja stuðlar að aukinni nýtingu og minni urðun.
Álagning fasteignaskatts er í þremur flokkum og er eftirfarandi:
a-flokkur 0,50% af fasteignamati:
Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
b-flokkur 1,32% af fasteignamati:
Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn
c-flokkur 1,35% af fasteignamati:
Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Vatnsgjald
Vatnsgjald verður 0,2% af fasteignamati eignar sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins.
Lágmarksálagning verður 6.000 kr. og hámarksálagning verður 18.000 kr. á íbúðar-og sumarhús.
Lóðarleiga er 1% af lóðamati.
Sorphirðu-og sorpeyðingargjald
Sorphirðugjald er sbr. samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Flóahreppi
a) 240 lítra tunna 12.000 kr.
c) 660 lítra kar 26.260 kr.
d) 1100 lítra kar 41.144 kr.
Sorpeyðingargjald:
Íbúðir 8.800 kr.
Sumarhús 8.800 kr.
Atvinnurekstur iðnaðarhverfi 19.200 kr.
Atvinnurekstur lögbýli 10.400 kr.
Seyrulosun 7.000 kr.
Öll gjöld hafa sömu gjalddaga og fasteignaskatturinn og er innheimtu þeirra hagað á sama hátt.
Greiðslur sem eru 20.000 kr eða lægri eru með einn gjalddaga, 1. mars. Greiðslur sem eru 20.001 kr til 60.000 kr greiðast á þremur gjalddögum, 1. mars, 1. maí og 1. júlí. Greiðslur 60.001 kr. og hærri greiðast á fimm gjalddögum, 1. mars, 1. maí, 1.júlí, 1. september og 1. nóvember.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Gjaldskrá fyrir garðslátt
Samþykkt hefur verið gjaldskrá fyrir garðslátt á vegum vinnuskóla Flóahrepps.
Gjaldskráin gerir ráð fyrir því að sláttur á grasflötum sé 20 kr. pr/fm og að ellilífeyris- og örorkuþegar fá 75% afslátt af gjaldi.
