Þann 1. desember næstkomandi rennur út frestur til að sækja um styrki til íþróttaiðkunar sem veittir eru samkvæmt samstarfssamningi Flóahrepps og ungmennafélaganna í Flóahreppi.
Allir sem lögheimili hafa í Flóahreppi og stunda íþróttagreinar sem rúmast innan vébanda ÍSÍ eiga rétt á styrk. Styrkir er veittir vegna greiðslu æfingagjalda og vegna æfinga- og keppnisferða. Umsóknum verður að fylgja nauðsynleg gögn sem sýna fram á greiðslu æfingagjalda eða ferðakostnaðar. Úhlutunarreglur má finna á www.floahreppur.is undir liðnum gjaldskrár og samþykktir. Umsóknir skulu berast til formanna ungmennafélaganna í Flóahreppi sem eru:
Umf. Baldur – Baldur Gauti Tryggvason ballroq@hotmail.com
Umf. Samhygð – Stefán Geirsson stegeir@hotmail.com
Umf. Vaka – Guðmunda Ólafsdóttir gola_89_15@hotmail.com
Ungmennafélögin og Flóahreppur
