10. bekkingar í Flóaskóla í Flóahreppi stóðu sig best í samdræmu prófunum af öllum skólum landsins í stærðfræði og íslensku en prófin voru tekin í haust.
Einkunnirnar eru normaldreifðar og er meðaleinkunn alltaf þrjátíu. Nemendur í Flóaskóla voru með 38,6 stig í íslensku og 36 stig í stærðfræði, þ.e. með bestu útkomuna í meðaltölum þessara tveggja námsgreina af öllum skólum landsins.
Þetta er frábær árangur hjá fyrsta árgangi 10. bekkjar í Flóaskóla.
