Fundargerð 107. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 2. nóvember 2011
Fundartími: 20:00 – 23:20
Fundarmenn:
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Árni Eiríksson
Elín Höskuldsdóttir
Hilda Pálmadóttir
Svanhvít Hermannsdóttir
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson setti fund og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Á fundi liggur frammi kynning á fyrirtækinu Maritech og starfsskýrsla Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.
Dagskrá:
- Skipulagsmál
a) Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar uppsveita Árnessýslu og Flóa nr. 40 dags. 20. október 2011.
Sveitarstjórn fjallar um liði nr. 4, nr. 26, nr. 27, nr. 28 og nr. 29. Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu á lið nr. 26, deiliskipulag úr landi Egilsstaða og er skipulagsfulltrúa falið að ræða við aðliggjandi landeigendur. Að öðru leyti staðfestir sveitarstjórn bókanir skipulagsnefndar.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 71 dags. 5. október 2011.
Sveitarstjórn fjallar um lið nr. 32 og staðfestir hann.
Svanhvít Hermannsdóttir yfirgaf fund við afgreiðslu málsins.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011
Lögð fram tillaga að breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2011.
Í samstæðu A og B hluta er gert ráð fyrir eftirfarandi breytingu frá samþykktri áætlun 2011:
Heildartekjur hækki um 32.287.000 kr.
Laun og launatengd gjöld hækki um 17.298.000 kr.
Annar rekstrarkostnaður hækki um 13.510.000 kr.
Afskriftir hækka um 1.393.000 kr.
Fjármagnsliðir hækka um 3.347.000 kr.
Rekstrarniðurstaða verður 1.140.000 kr. í stað 4.401.000 kr.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Tilboð í tæmingu rotþróa
Tilboð í tæmingu rotþróa í Flóahreppi voru opnuð í Þingborg 24. október s.l.
Tvö tilboð bárust og eitt frávikstilboð.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga frá samningi við Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands samkvæmt fyrirliggjandi tilboði sem hljóðaði upp á 3.865.450 kr.
Samþykkt samhljóða.
- Álagningarreglur 2012
Sveitarstjórn samþykkir að útsvar fyrir árið 2012 verði 14,48%.
Álagning fasteignagjalda fyrir árið 2012 verður eftirfarandi:
a-flokkur 0,50% af fasteignamati:
b-flokkur 1,32% af fasteignamati:
c-flokkur 1,35% af fasteignamati:
Vatnsgjald verði 0,2% af fasteignamati eignar sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins.
Lágmarksálagning verður 6.000 kr. og hámarksálagning verður 18.000 kr. á íbúðar-og sumarhús.
Lóðarleiga er 1% af lóðamati.
Sorphirðugjald er sbr. samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Flóahreppi
a) 240 lítra tunna 12.000 kr.
c) 660 lítra kar 26.260 kr.
d) 1100 lítra kar 41.144 kr.
Sorpeyðingargjald:
Íbúðir 8.800 kr.
Sumarhús 8.800 kr.
Atvinnurekstur iðnaðarhverfi 19.200 kr.
Atvinnurekstur lögbýli 10.400 kr.
Seyrulosun 7.000 kr.
Öll gjöld hafa sömu gjalddaga og fasteignaskatturinn og er innheimtu þeirra hagað á sama hátt.
Greiðslur sem eru 20.000 kr. eða lægri eru með einn gjalddaga, 1. mars. Greiðslur sem eru 20.001 kr. til 60.000 kr. greiðast á þremur gjalddögum, 1. mars, 1. maí og 1. júlí. Greiðslur 60.001 kr. og hærri greiðast á fimm gjalddögum, 1. mars, 1. maí, 1.júlí, 1. september og 1. nóvember.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Undirbúningur fjárhagsáætlunar 2012
Fyrir fundi liggja tillögur um fjárhagsáætlun Krakkaborgar og Flóaskóla fyrir árið 2012, tillaga um viðhaldsframkvæmdir húseigna sveitarfélagsins, tillaga um rekstrarkostnað félagsheimilanna og tillaga að fjárhagsáætlun fyrir æskulýðs- og tómstundanefnd.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Erindi frá hestamannafélaginu Sleipni
Lagt fram erindi frá reiðveganefnd hestamannafélagsins Sleipnis dags. 27. október 2011. Í erindinu er óskað eftir fjárframlagi til reiðvegagerðar í Flóahreppi.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Gjaldskrá fyrir garðslátt
Tekin til seinni umræðu, drög að gjaldskrá fyrir garðslátt á vegum vinnuskóla Flóahrepps.
Gjaldskráin gerir ráð fyrir því að sláttur á grasflötum sé 20 kr. pr/fm. Ellilífeyris- og örorkuþegar fá 75% afslátt af gjaldi.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Erindi frá Umhverfisstofnun, tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd
Lagt fram erindi frá Umhverfisstofnun dags. 20. október 2011 þar sem óskað er tilnefningar fulltrúa Flóahrepps í vatnasvæðisnefnd á vatnasvæði 4 sbr. 6. gr. reglugerðar um stjórn vatnamála.
Sveitarstjórn óskar eftir upplýsingum um afmörkun vatnasvæða og af hverju fulltrúi Flóahrepps á að vera á vatnasvæði 4 þar sem það tilheyrir Suðvesturlandi.
Erindi frestað.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Erindi frá Umhverfisráðuneytinu, mat á umhverfisáhrifum
Lagt fram erindi frá Umhverfisráðuneytinu dags. 20. október 2011 þar sem óskað er eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
- Erindi frá Umhverfisráðuneytinu, landsáætlun um meðhöndlun úrgangs
Lagt fram erindi frá Umhverfisráðuneytinu dags. 26. september 2011 þar sem fram kemur að hafinn sé undirbúningur að útgáfu landsáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2012-2023 og innleiðingu á rammatilskipun Evrópusambandsins um úrgang.
Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu og óska eftir frekari upplýsingum.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Bréf frá unglingadeild Flóaskóla
Lagt fram bréf frá nemendum elsta stigs í Flóaskóla dags. 27. september 2011 þar sem gerðar eru athugasemdir vegna uppbyggingar félagsmiðstöðvar Flóahrepps.
Sveitarstjóra falið að svara erindi nemenda.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Skólavog
Lögð fram kynning á Skólavoginni.
Samþykkt að fresta afgreiðslu til næsta fundar.
- Fundargerðir
a) Sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundargerð sveitarstjórnar Flóahrepps dags. 5. október 2011 lögð fram.
b) Æskulýðs- og tómstundanefndar
Fundargerð æskulýðs- og tómstundanefndar Flóahrepps dags. 19. október 2011 lögð fram.
c) Vinnuhóps um húsnæði leikskólans
Fundargerðir vinnuhóps um húsnæði leikskólans dags. 10. október og 17. október 2011 lagðar fram.
d) Rekstrarstjórnar
Fundargerðir rekstrarstjórnar félagsheimila Flóahrepps dags. 14. júní, 13. júlí, 7. september, 5. október og 12. október 2011 lagðar fram.
e) Velferðarnefndar ásamt reglum um heimaþjónustu
Fundargerð velferðarnefndar dags. 12. október 2011 lögð fram ásamt reglum um heimaþjónustu hjá Velferðarþjónustu Árnesþings.
Sveitarstjórn staðfestir meðfylgjandi reglur fyrir sitt leyti.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
f) NOS ásamt fjárhagsáætlun fyrir velferðarþjonustu Árnesþings fyrir árið 2012
Fundargerð NOS, stjórnar velferðarnefndar Árnesþings, dags. 24. október 2011 lögð fram ásamt fjárhagsáætlun fyrir velferðarþjónustu árið 2012.
Sveitarstjórn staðfestir fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 fyrir sitt leyti.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
- Til kynningar:
a) 447. fundur SASS dags. 7. október 2011
b) 207. og 208. fundur Sorpstöðvar Suðurlands dags. 10. október og 17. október 2011
c) 134. fundur Skólaskrifstofu Suðurlands dags. 6. október 2011
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 23:20
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Árni Eiríksson, varaoddviti (sign)
Elín Höskuldsdóttir (sign)
Hilda Pálmadóttir (sign)
Svanhvít Hermannsdóttir (sign)
Margrét Sigurðardóttir (sign)
