Búbót bændaverslun í Gömlu Þingborg er opin föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 13 – 18.
Búbót er þátttakandi í Safnahelgi á Suðurlandi og hefur á boðstólum úrval upprunamerktra matvara. Nýtt í búðinni þessa helgi er Búbótarfolaldakjöt frá Guðnastöðum og gæsabringur frá Laugardælum. Nú er gott tækifæri til að huga að jólasteikinni og skoða hvað er á boðstólnum í Búbót.
Á boðstólum um helgina verða m.a.
· Rabbarbaravörurnar frá Rabarbíu á Löngumýri.
· Kornvörurnar frá Ískorni í Birtingaholti.
· Reyktur lax og fersk bleikja frá Fagradalsbleikju í Fagradal.
· Gulrófur og hnúðkál frá Þórisholti.
· Gulrætur frá Fljótshólum.
· Kjötfars, hrossasaltkjöt, hrossa- og ærbjúgu frá Böðmóðstöðum.
· Broddur frá Hlíð.
· Búbótar nautakjöt frá Litla-Ármóti, Bjólu, Læk og Hæli.
· Kartöflur frá Mjósyndi.
· Svínakjöt frá Laxárdal.
· Flatkökur frá Kirkjubæjarklaustri.
· Reykt þorskalifur frá Sandgerði.
· Búbótarlambakjöt frá Langsstöðum, Skeggjastöðum og Læk.
· Handgerður brjóstsykur frá Svandísi á Selfossi.
· Tómatjukk og tilbúin piparsósa frá Matstofunni í Árnesi.
· Fetaostur og skyr frá Fjóshorninu á Egilsstöðum.
· Sæt paprika frá Jörfa.
· Rauðkál og hvítkál frá Sigrúnu og Þresti á Flúðum
· Gúrkur, tómatar og sætir tómatar Reyni í Reykási.
· Landnámshænuegg frá Skeggjastöðum.
· Hunang og bívax frá Álfsstöðum.
· Búbótarfolaldakjöt frá Guðnastöðum.
· Gæsabringur frá Laugardælum.
