Sveitarstjórn hefur samþykkt álagningarreglur fyrir árið 2012.
Einu breytingar sem gerðar voru frá fyrra ári eru þær að sorphirðugjöld á 660 ltr. og 1.100 ltr. körum hækkar. Það var gert með það í huga að jafna greiðslur samanber stærðir íláta en samkvæmt fyrri álagningarreglum var greitt hlutfallslega mest fyrir minnstu ílátin, 240 ltr. tunnur. Álagningarreglur í heild sinni eru eftirfarandi:
Sveitarstjórn samþykkir að útsvar fyrir árið 2012 verði 14,48%.
Álagning fasteignagjalda fyrir árið 2012 verður eftirfarandi:
a-flokkur 0,50% af fasteignamati:
b-flokkur 1,32% af fasteignamati:
c-flokkur 1,35% af fasteignamati:
Vatnsgjald verði 0,2% af fasteignamati eignar sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins.
Lágmarksálagning verður 6.000 kr. og hámarksálagning verður 18.000 kr. á íbúðar-og sumarhús.
Lóðarleiga er 1% af lóðamati.
Sorphirðugjald er sbr. samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Flóahreppi
a) 240 lítra tunna 12.000 kr.
c) 660 lítra kar 26.260 kr.
d) 1100 lítra kar 41.144 kr.
Sorpeyðingargjald:
Íbúðir 8.800 kr.
Sumarhús 8.800 kr.
Atvinnurekstur iðnaðarhverfi 19.200 kr.
Atvinnurekstur lögbýli 10.400 kr.
Seyrulosun 7.000 kr.
Öll gjöld hafa sömu gjalddaga og fasteignaskatturinn og er innheimtu þeirra hagað á sama hátt.
Greiðslur sem eru 20.000 kr. eða lægri eru með einn gjalddaga, 1. mars. Greiðslur sem eru 20.001 kr. til 60.000 kr. greiðast á þremur gjalddögum, 1. mars, 1. maí og 1. júlí. Greiðslur 60.001 kr. og hærri greiðast á fimm gjalddögum, 1. mars, 1. maí, 1.júlí, 1. september og 1. nóvember.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
