Flóahreppur hefur gert samning við nemendur 10. bekkjar um aðstoð við gæslu í frímínútum og í mötuneyti skólans.
Nemendur annast gæsluna með kennurum og öðru starfsfólki skólans. Skólastjóri og umsjónarkennari skipuleggja starfið fyrir nemendur og hafa yfirumsjón með því.
Nemendur fá greitt fast verð frá Flóahreppi fyrir vinnuna sem rennur óskipt í ferðasjóð þeirra.
Þeir nemendur sem annast gæsluna hverju sinni hafa kuldagalla til afnota og endurskinsvesti sem TM gaf skólanum.
Þetta fyrirkomulag gengur vel, krakkarnir standa sig með prýði og starfsfólk er ánægt með aðstoðina.
Á myndinni eru nemendur 10. bekkjar ásamt Sigrúnu Árnadóttur umsjónarkennara, Elínu Höskuldsdóttur formanni fræðslunefndar, Kristínu Sigurðardóttur skólastjóra og Margréti Sigurðardóttur sveitarstjóra.
Daginn sem myndin var tekin var furðufatadagur í skólanum og nemendur því klæddir í samræmi við það.
