Vinnuhópur um húsnæðismál leikskólans Krakkaborgar boðar íbúa sveitarfélagsins á íbúafund í Flóaskóla fimmtudagskvöldið 3. nóvember kl. 20:00.
Síðastliðin misseri hefur nemendum í leik- og grunnskóla Flóahrepps fjölgað mikið. Endurbætur hafa verið unnar á húsnæði leikskólans Krakkaborgar í því skyni að sinna eðlilegu viðhaldi en ekki síður til að bæta aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk. Þrátt fyrir þetta eru húsnæðismál leikskólans nú komin að þanmörkum og útlit fyrir að biðlisti myndist við skráningu barna. Vorið 2011 tók til starfa vinnuhópur um húsnæðismál leikskólans sem fékk það hlutverk að leita lausna á fyrirsjáanlegum húsnæðisvanda. Að svo komnu máli langar vinnuhópinn að skoða möguleika á tilfærslu leikskólans frá Þingborg að skólasvæðinu við Flóaskóla. Í Flóaskóla þarf að huga að úrlausn mála vegna aðstöðu fyrir mötuneyti og íþróttakennslu og því er nú góður grundvöllur til að skoða alla uppbyggingu í skólamálum í stærra samhengi. Í nýlegum lögum um leik- og grunnskóla og endurskoðuðum aðalnámskrám fyrir bæði skólastigin hefur verið gefið aukið svigrúm til meira samstarfs, samnýtingar og samreksturs á milli skólastiga leik- og grunnskóla og hafa sveitarfélög í auknum mæli nýtt sér það svigrúm.
Horfa þarf til framtíðar, skoða kosti heildstæðs skólasamfélags og frekari stefnumótun fræðslumála, með hagsmuni barnanna að leiðarljósi.
Vinsamlegast veltið fyrir ykkur eftirfarandi spurningum sem notaðar verða í hópvinnu á fundinum:
1. Hvern telur þú helsta ávinninginn af því fyrir leikskólann Krakkaborg að vera í nálægð við skólastarfið í Flóaskóla?
2. Hvernig telur þú að það geti hamlað leikskólastarfinu að færa Krakkaborg að skólasvæðinu við Flóaskóla?
3. Hvern telur þú helsta ávinninginn af því fyrir Flóaskóla að vera í nálægð við skólastarfið í Krakkaborg?
4. Hvernig telur þú að það geti hamlað grunnskólastarfinu að færa Krakkaborg að skólasvæðinu við Flóaskóla?
Framsöguerindi verða frá Skólaskrifstofu Suðurlands og fulltrúum skóla sem reynslu hafa af samnýtingu og samrekstri leik- og grunnskóla. Eftir hópavinnu gefst fundargestum tækifæri til að varpa spurningum til framsöguaðila. Áætluð fundarlok eru um kl. 22:00-22:30.
Með von um góða mætingu á íbúafund og málefnalegar umræður.
Kaffi og meðlæti!
Vinnuhópur um húsnæðismál leikskólans Krakkaborgar:
