Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi
Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.
Breyting á Aðalskipulagi Flóahrepps 2006-2018 í fyrrum Villingaholtshreppi. Mörk úr landi Skálmholts.
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi 7. september 2011 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2006-2018 í fyrrum Villingholtshreppi á spildu úr frístundahúsasvæðinu Mörk úr landi Skálmholts. Í breytingunni felst að um 6 ha af frístundahúsasvæðinu, sem í dag er um 11 ha og er merkt sem F13 á skipulagsuppdrætti, verður að landbúnaðarsvæði. Tillagan var auglýst samhliða breytingu á deiliskipulagi svæðisins 30. júní 2011 með athugasemdafresti til 12. ágúst. Engar athugasemdir bárust. Aðalskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og verið send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar geta snúið sér til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps.
1. nóvember 2011
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
