Umhverfisverðlaun 2011

Óskað er eftir hugmyndum og tillögum um umhverfisverðlaun fyrir árið 2011 frá íbúum Flóahrepps.

Umhverfisverðlaun geta hlotið einstaklingar, heimili, fjölskyldur, fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök í sveitarfélaginu sem þykja hafa skarað fram úr eða verið til fyrirmyndar í umhverfismálum það árið eða undangengin ár. Aðeins þeir sem hafa lögaðsetur í sveitarfélaginu koma til greina við val á umhverfisverðlaunum.


Verklagsreglur um val á umhverfisverðlaunum má sjá á heimasíðu Flóahrepps, http://www.floahreppur.is/stjornsysla/umhverfismal


Íbúar eru hvattir til að taka þátt og þar með veita viðurkenningu þeim aðilum, fyrirtækjum og/eða félagasamtökum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum.


Það er mikilvægt og nauðsynlegt fyrir þá sem hafa gert gangskör eða skarað framúr í snyrtingu og fegrun umhverfis að fá viðurkenningu fyrir það en ekki síður fyrir samfélagið í heild sinni að skapa sér ímynd sem snyrtilegt og umhverfisvænt sveitarfélag.


Tilnefningum og hugmyndum má skila á skrifstofu Flóahrepps, Þingborg, merkt umhverfisverðlaun eða á netfangið floahreppur@floahreppur.is fyrir 15. september n.k.


Atvinnu- og umhverfisnefnd Flóahrepps