Hin árlega tónahátíð félagsheimilanna í Flóahreppi er nú framundan.
Byrjað verður í Félagslundi þann 1. október, lög Oddgeirs Kristjánssonar frá Vestmanneyjum. Í tilefni af 100 ára afmælisárs Oddgeirs Kristjánssonar alþýðutónskálds frá Vestmannaeyjum verða valin lög hans flutt af Jóni Gunnari Biering Margeirssyni gítarleikara, Ingólfi Magnússyni bassaleikara og Hafsteini Þórólfssyni söngvara en Hafsteinn er langafabarn Oddgeirs. Oddgeir var frumkvöðull í tónlistarlífi Vestmannaeyja. Hann var upphafsmaður þeirrar hefðar að semja lög fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja sem hann gerði nánast óslitið frá árunum 1933-1965. Oddgeir samdi einnig lög fyrir leikrit, fjáraflanir og önnur tilefni. Á dagskrá tónleikana verða helstu perlur hans fluttar ásamt því að flytja lög sem eru síður þekkt. Í bland við flutninginn verða sagðar sögur af verkum hans.
Næsti viðburður verður í Þjórsárveri 15. október, þá verður leiksýningin; Mamma, ÉG? Hér er á ferð gamansamur einleikur eftir nýbakaða móður um meðgöngu, fæðingu og sjálft móðurhlutverkið. Lilja Katrín sem er höfundur leikritsins, ásamt Svani Má Snorrasyni, var með lífið planað. Hún ætlaði aldrei að vera mamma enda miklu skemmtilegra að djamma, djúsa og fara í skemmtistaðasleiki á sóðalegum börum. En lífið henti Lilju út í djúpu laugina eitt vorkvöld í Köben. Hún varð ólétt eftir einnar nætur gaman og eftir miklar hugleiðingar fram og til baka ákvað hún að eignast barnið. Það var hægara sagt en gert. Lilja komst að því að það var ótal margt sem hún hafði ekki hugmynd um er varðar meðgönguna. Konur tala ekki um gyllinæð, þvagleka, skeggvöxt og bjúg heldur einblína á að meðgangan, fæðing og það að verða mamma sé bara frábært, æðislegt og meiriháttar – sem það er vissulega, en ekki alltaf. Þessi einleikur er fyrir alla og geta allir haft gaman að, hvort sem það eru óléttar konur, ömmur, afar, bræður, systur, mömmur, pabbar og allir þeir sem hafa hugleitt barneignir eða þekkja einhvern sem hefur gengið í gegnum þetta ferli. Komið með í ferðalag um ævintýraheima bleyjuskipta, ungbarna, brjóstagjafar og ælubletta, hlæjið ykkur máttlaus og tárist af gleði.
Þá mun Sigurður Ingi Sigurðsson í Hamarskoti og fyndnasti maður suðurlands vera með uppistand.
Þriðji og síðasti viðburðurinn að þessu sinni verður svo í Þingborg 5. nóvember þar sem Helgi Björns og reiðmenn vindanna verða með stórtónleika. Frá því að fyrsta plata Helga Björns og reiðmanna kom út hafa þeir notið dálætis þjóðarinnar, með því að sækja í sönglaga arfinn, fríska upp á gamla gimsteina sem þjóðin hefur sungið í gegnum áratugina og blandað saman gömlum hesta og útilegu söngvum, við dægurlög sem eiga sérstakan stað í þjóðarsálinni.
Húsin verða opnuðu kl. 20:30 og allir viðburðirnir hefjast kl. 21:00 gott er að panta miða tímalega, þó verður einnig hagt að kaupa miða við inngangin á meðan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir er kr. 2.000 á fyrstu tvo viðburðina en kr. 3.500 á Helga Björns og reiðmenn vindanna.
Miðapantanir í síma: Félagslundur: 692-8565, Þjórsárver: 898-8779, Þingborg: 691-7082
