Skólakynning í Flóaskóla

Kæru foreldrar nemenda í Flóaskóla.

Skólakynningar verða fyrir foreldra í skólanum sem hér segir:

mánudaginn 26. september kl. 8:10-9:30 fyrir 1.-5. bekk.
miðvikudaginn 28. september kl. 8:10-9:30 fyrir 6.-10. bekk.

Kynningarnar hefjast með stuttu spjalli skólastjóra, síðan fara foreldrar í kennslustofur barna sinna þar sem umsjónarkennarar og nemendur sjá sameiginlega um kynningu á námsefni, verkefnum og öðru starfi í bekkjunum.

Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta.