Samningur um leigu Gömlu Þingborgar

Flóahreppur og Búbót afurðir ehf hafa skrifað undir samning um leigu á hluta húsnæðis Gömlu Þingborgar til sölu landbúnaðarafurða.

Það voru þau Margrét Sigurðardóttir fyrir hönd Flóahrepps og Guðbjörg Jónsdóttir og Gauti Gunnarsson fyrir hönd Búbótar sem undirrituðu samninginn.