17. júní verður haldinn hátíðlegur á þremur stöðum í Flóahreppi. Í Þjórsárveri hefst dagskrá kl. 13.00 með íþróttakeppni barna og unglinga, 13 ára og yngri. Keppt verður í 60m hlaupi, langstökki, kúluvarpi og 400m hlaupi. Andlitsmálun og hoppukastali verður í boði fyrir börnin.
Eftir keppni munu kvenfélagskonur stjórna leikjum og fjallkonan stígur á stokk. Að lokum verður kaffi og meðlæti í Þjórsárveri fyrir alla og eru gestir beðnir að taka með sér bakkelsi.
Í Einbúa mun ungmennafélagið Baldur skipuleggja þjóðhátíðardaginn að vanda og hefst dagskrá kl. 14.00 með hátíðarræðu og ávarpi fjallkonu. Þreytt verður víðavangshlaup og viðurkenningar veittar fyrir það. Andlitsmálun verður fyrir börnin, leikir og margt fleira. Að lokinni dagskrá verður kaffi og meðlæti.
Í Félagslundi munu kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps og umf. Samhygð standa að dagskrá á þjóðhátíðardag. Hátíðin hefst kl. 13.00 með íþróttamóti fyrir börn og unglinga, 14 ára og yngri. Að móti loknu verður farið í ýmsa leiki, boðið verður upp án andlitsmálun og blöðrur verða seldar. Einnig verður hoppukastali á staðnum. Kaffisamsætii verður í Félagslundi að lokinni útidagskrá og er fólk minnt á að taka með sér kökur á kaffiborðið.
