Viðurkenningar til nemanda í Flóaskóla

Hinn 17. júní 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, forseta.  Afmælisnefndin var skipuð vegna þessa og í samvinnu við Mennta- og menningarmálaráðuneytið stóð hún fyrir ritgerðasamkeppni fyrir 8. bekkinga í grunnskólum landsins, en ritgerðirnar áttu að birtast sem sendibréf til Jóns.  Alls bárust 170 ritgerðir til dómnefndar og 12 þeirra fengu viðurkenningu, þar á meðal ritgerð Helgu Margrétar Höskuldsdóttur, nemanda í 8. bekk við Flóaskóla. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu laugardaginn 19. mars.  Framhald verður svo á viðurkenningum til handa Helgu Margréti því skólanum barst á dögunum tilkynning um það að hún hefði náð verðlaunasæti í stærðfræðikeppni grunnskóla sem fram fór í FSu um miðjan mars.  Verðlaunaafhending verður á Skólaskrifstofu Suðurlands föstudaginn 25. mars.  Við óskum Helgu Margréti innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og flottar viðurkenningar.