Sunnudaginn 27. mars voru veittar viðurkenningar fyrir tilnefningar til íþróttamanns ársins í Flóahreppi við hátíðlega athöfn í Þingborg. Einnig var kunngjört um hver hefði verið kjörinn íþróttamaður ársins 2010.
Valnefnd skipuðu formenn ungmennafélaga sveitarfélagsins þau Baldur Gauti Tryggvason, Guðmunda Ólafsdóttir og Stefán Geirsson auk formanns æskulýðs- og íþróttanefndar, Anný Ingimarsdóttur.
Auglýst var eftir tillögum og voru eftirtaldir aðilar tilnefndir:
Árni Steinn Steinþórsson Handbolti
Áslaug Ýr Bragadóttir Handbolti
Birkir Fannar Bragason Handbolti
Guðrún Inga Helgadóttir Glíma
Haraldur Einarsson Frjálsar íþróttir
Ketill Heiðar Hauksson Handbolti
Kristrún Steinþórsdóttir Handbolti
Linda Ósk Þorvaldsdóttir Fimleikar
Ragnheiður Hallgrímsdóttir Hestaíþróttir
Reynir Árnason Blak
Valnefnd komst að samhljóða niðurstöðu um það hver skyldi bera nafnbótina íþróttamaður ársins 2010 í Flóahreppi en það var Árni Steinn Steinþórsson,handboltamaður.
