Reglur um afslátt á fasteignaskatti

Samkvæmt 3. gr. reglna um lækkun, niðurfellingu eða styrki vegna fasteignaskatts í Flóahreppi geta ellilífeyrisþegar og öryrkjar með lögheimili í sveitarfélaginu átt rétt á afslætti af fasteignaskatti.

Samkvæmt reglunum þurfa öryrkjar að skila inn umsóknum sem allra fyrst til skrifstofu Flóahrepps ásamt staðfestu skattframtali næstliðins árs. Frekari upplýsingar fást á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 480 4370. Einnig er bent á reglurnar í heild sinni sem nálgast má hér.