Hátíðartónleikar verða haldnir í Villingaholtskirkju laugardaginn 5. febrúar kl. 14:00. Tónleikarnir eru í tengslum við vígslu Ahlborn orgels kirkjunnar en kirkjan á 100 ára afmæli á árinu. Eftirtaldir organistar leika valin orgelverk:
Ólafur Sigurjónsson, Forsæti í Flóahreppi
Guðjón Halldór Óskarsson, Hvolsvelli
Jón Ólafur Sigurðsson, Hjallakirkju
Guðný Einarsdóttir, Fella- og Hólakirkju
Haukur Guðlaugsson, fyrrverandi söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar.
Að tónleikum loknum býður söngkór kirkjunnar til kaffisamsætis í Þjórsárveri.
Frekari upplýsingar má sjá hér.
