Leikdeild Umf Vöku frumsýnir næstkomandi föstudag leikritin Á þriðju hæð eftir Vilhelm Mejo og Amor ber að dyrum eftir Georg Falk. Leikstjóri er heimamaðurinn Þorsteinn Logi Einarsson.
Leikritin tvö eru stuttverk í gamansömum tón þar sem misskilningur og kátlegar uppákomur ráða för. Þetta eru skemmtileg leikverk sem henta vel fyrir alla fjölskylduna og verða þau sýnd saman í félagsheimilinu Þjórsárveri þar sem boðið verður upp á notalega kaffihúsastemmingu. Kaffi, gos og dýrindis kökur verða svo seldar í hléi.
Sýningar verða sem hér segir:
Föstudagurinn 25. febrúar kl 20:30 Frumsýning
Laugardagurinn 26. febrúar kl 20:30
Laugardagurinn 5. mars kl 15:00
Laugardagurinn 5. Mars kl 22:00
ATH aðeins þessar fjórar sýningar!!!
Miðapantanir eru í síma 845-9719.
Miðaverð aðeins 1000 kr
Leikdeild Umf Vöku hvetur alla til að koma við í Þjórsárveri á þessa stórgóðu skemmtun.
Munið, hláturinn lengir lífið J
