Einingakubbar voru teknir í notkun í Krakkaborg haustið 2010. Kubbarnir eru úr hlyni sem er gegnheill viður og er mjúkur þannig að ekki flísast upp úr kubbunum.
Börnunum finnst mjög gaman að byggja úr kubbunum og hafa byggingar þeirra þróast hratt frá því í haust. Börnin fá einnig annan efnivið til að nota með kubbunum eins og dýr, litaða trékubba, tuskur og fleira sem þau nota sem skreytingarefni og þannig halda þau áfram að leika með bygginguna sína.
Einingakubbarnir voru þróaðir af Caroline Pratt snemma á 20.öld og eru þeir margir og mismunandi að lögun. Grunnkubburinn er einingakubburinn og ganga allir hinir kubbarnir út frá stærð hans. Þannig læra börnin um mismunandi stærðarhlutföll og hver bygging verður einstök sem hægt er að þróa áfram.
Börnin ganga í gegnum stigskipta þróun í kubbaleiknum óháð aldri. Þau byrja á því að handfjatla kubbana og bera þá um en byggja ekki endilega strax og er þetta fyrsta stigið. Oftast eru þetta mjög ung börn sem eru að byrja að rannsaka þennan nýja efnivið. Á öðru stigi byrja að sjást byggingar en þær eru oftast í röðum, ýmist lóð- eða lárétt og í stöflum.
Oft eru miklar endurtekningar í byggingamynsturnum á stigi 2. Á þriðja stigi fara að sjást örlítið flóknari byggingar eftir því sem börnin verða eldri og prófa sig áfram en börnin eru mislengi á hverju stigi fyrir sig. Þegar börnin fara að nota kubbana mjög reglulega fara þau yfir á 4.stig og fara þá að raða og girða af ákveðin svæði
Þau fara að leysa ýmis vandamál. Á 5.stigi fara að koma nýjar hugmyndir og börnin fara að nota fleiri kubba og skapa vandaðri og betur útfærða hönnun með því að nota mynstur og jafnvægi í byggingunum.
Á 6.stigi fara börnin að gefa byggingum sínum nöfn og leika með þær í hlutverkaleiknum.
Lokastigið er þegar kubbabyggingarnar endurspegla raunverulegar byggingar sem börnin þekkja.
Það hefur verið gaman að sjá þróun byggingaleiksins hjá börnunum og fara þau mishratt af einu stigi yfir á annað. Elstu börnin byrjuðu á stigi 3 og hafa þróað byggingarnar mjög hratt á aðeins 5 mánuðum. Hér má sjá nokkrar af byggingum barnanna síðan haustið 2010 og hvernig þróunin hefur verið fram til þessa.
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, Sérkennslu- og aðstoðarleikskólastjóri.
