Nú hefur Flóaskóli skráð sig til leiks í Skólahreysti. Skólahreysti er liðakeppni milli grunnskóla landsins. Hvert lið samanstendur af tveimur strákum og tveimur stelpum. Keppt er í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðaþraut. Þáttakendur koma úr röðum nemenda í 9. og 10. bekk. Val á keppendum okkar mun fara fram fljótlega. Skólahreysti er uppskrift að heilbrigðum lífsstíl þar sem allir geta tekist á við einfaldar og skemmtilegar þrautir. Sigurinn felst í því að taka þátt. Vonandi verður þetta vettvangur til að skapa skemmtilega stemmningu og liðsheild hjá nemendum okkar. Undankeppni fyrir grunnskóla á suðurlandi verður í byrjun mars í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi.
