Atvinnulífsfundur

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands í samvinnu við sveitarstjórn og atvinnunefnd Flóahrepps mun standa fyrir kynningarfundi á stoðkerfi atvinnulífsins á Suðurlandi. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 1. febrúar 2011 í Þjórsárveri kl. 20.30. – 22.30.

Eftirtaldir aðilar kynna starfsemi sína:


· Atvinnuþróunarfélag Suðurlands


· Vaxtasamningur Suðurlands


· Háskólafélag Suðurlands


· Menningarráð Suðurlands


· Markaðsstofa Suðurlands


Að auki kynnir Bjarni Sigurðsson hjá Formax í Flóahreppi starfsemi fyrirtækisins.



Gefinn verður kostur á spurningum og umræðum.



Rekstraraðilar, sveitarstjórnarmenn, atvinnumálanefnd, einstaklingar með hugmyndir og að sjálfsögðu allir áhugasamir íbúar sveitarfélaganna eru hvattir til að mæta og kynna sér starfsemi stoðkerfisins á Suðurlandi.