Vegtollar á Hellisheiði

Sveitarstjórn bókaði á fundi sínum 20. desember s.l. svohljóðandi mótmæli við fyrirhugaða gjaldtöku vegna veglagningar um Heillisheiði:

Ljóst má vera að fyrirhuguð gjaldtaka vegna veglagningar um Hellisheiði yrði íþyngjandi fyrir íbúa Flóahrepps sem vinnu sinnar vegna eða af öðrum ástæðum þurfa að fara um heiðina. Íbúum þessa lands yrði mismunað eftir búsetu þar sem ekki hefur verið innheimtur vegskattur af sambærilegum nýframkvæmdum hér á landi. Auk þess væri um tvísköttun að ræða þar sem orkan er nú þegar skattlögð m.a. til að mæta vegaframkvæmdum. Sveitastjórn Flóahrepps mótmælir fyrirhugaðri gjaldtöku og skorar á ráðamenn þjóðarinnar að falla frá hugmyndum um vegatolla.
Mótmælin hafa verið send til Samgönguráðherra, Samgöngunefndar Alþingis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sambands sunnlenskra sveitarfélaga.