Jólatré í Krakkaborg

Börn og starfsmenn Krakkaborgar sóttu jólatré í garð leikskólans 1. desember s.l. Byrjað var á því að kveikja eld í eldstæðinu við mikla kátínu barnanna og sungin nokkur jólalög.

Síðan var jólatré valið og það sagað niður. Að því loknu fengu börnin óvænta heimsókn, þá félaga Skyrgám og Bjúgnakræki. Þeir sungu nokkur jólalög með krökkunum og gáfu þeim mandarínur.