Gjöf frá Gunnari Björnssyni

Gunnar Björnsson hjá BG bílum í Flóahreppi ætlar að gefa vinnu sína, efni og aðstöðu vegna kennslu í valgrein í 9. bekk. Hann hefur s.l. sex vikur verið með tvo nemendahópa í kennslu hjá sér og var síðasti tíminn í gær, 8. desember.

Gunnari  vill með þessu móti styðja við uppbyggingu unglingadeildar við Flóaskóla og eru honum færðar kærar þakkir fyrir þetta rausnarlega framlag hans. 


Gunnar hefur farið yfir undirstöðuatriði bifvélavirkjunar með krökkunum og lagt áherslu á að leyfa þeim að taka til hendinni og prófa sig áfram. Nemendurnir hafa verið sérlega ánægðir með þessa valgrein eins og reyndar allar valgreinarnar sem þeir hafa fengið það sem af er vetri.