Gilsbakkaþulan var sungin 1. desember s.l. í Gömlu Þingborg en hefð er fyrir því að hún sé flutt í upphafi aðventu af Þingborgarhópnum.
Flutningur þulunnar hófst kl. 17.00 en þá var tekið hlé og gestir borðuðu saman súpu við kertaljós. Seinni hlutinn var síðan fluttur að snæðingi loknum.
Gilsbakkaþula er gamalt sagnakvæði eftir Kolbein Þorsteinsson prest frá Miðdal og er að því talið er, frá árinu 1760.
