Um 200 manns mætti á vígsluhátíð fyrir viðbyggingu Flóaskóla sem haldin var föstudaginn 29. október s.l. Elín Höskuldsdóttir, formaður fræðslunefndar rakti í ávarpi sínu, forsögu þess að ráðist var í byggingarframkvæmdir en einlægur vilji var hjá íbúum Flóahrepps um að farið yrði í stækkun skólans og unglingastigið fært í skólann. Aðalsteinn Sveinsson oddviti sagði frá kostnaðarþætti framkvæmdanna og þeirri aðferðafræði sem notuð var við þær.
Kristín Sigurðardóttir, skólastjóri, sagði frá mikilvægi þess að hafa gott og samhent fólk við störf innan veggja skóla. Milli ávarpa fluttu nemendur skólans tónlistaratriði. 1. – 3. bekkur söng, Hallgerður Höskuldsdóttir lék á píanó og Jón Gunnþór Þorsteinsson lék á bariton horn.
Gestur Þráinsson afhenti skólastjóra lykla að nýbyggingunni og flutti ávarp þar sem hann sagði frá góðu samstarfi milli vinnuhóps um framkvæmdir og byggingarverktaka. Vinnuhópur fundaði nokkuð ört á framkvæmdatíma og sat Gestur flesta fundi. Í vinnuhóp áttu sæti Kristín Sigurðardóttir, skólastjóri, Guðmundur Jón Sigurðsson, umsjónarmður fasteigna, Aðalsteinn Sveinsson, oddviti og Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri. Elín Höskuldsdóttir, formaður fræðslunefndar bættist svo við í hópinn á seinni stigum framkvæmda.
Gestur afhenti skólanum einnig blómaskreytingu að gjöf. Ingvar Guðni Ingimundarson hjá VIG vélsmiðju, gaf skólanum vinnusloppa fyrir nemendur í málmsmíði og Verkís gaf skólanum fræðibókina “Maðurinn”. Ragnar Sigurjónsson tók allar myndir á vígsluhátíðinni sem sjá má hér á síðunni fljótlega undir myndasafn. Öllum þessum aðilum eru færðar bestu þakkir frá sveitarfélaginu.
